Flugrúta | Keflavíkurflugvöllur til BSÍ
Með flugrútunni kemstu frá Keflavíkurflugvelli niður í miðbæ Reykjavíkur og til baka. Stoppað er einnig í Hafnarfirði og Garðabæ ef bílstjóri er látinn vita. Með því að bóka ertu með tryggt sæti og ekið er af stað eftir hverja komu flugs til landsins.
Þessi þjónusta er í boði allt árið.
Sömuleiðis er boðið upp á flugrútu frá Reykjavík til Keflavíkurflugvallar:
Flugrúta | BSÍ til Keflavíkurflugvallar