Gistiaðstaða
Íbúð með sérinngangi heima á bæ. Þrjú svefnherbergi, þ.e. 2 x 2ja manna og 1x3ja manna. Eldhús og setustofa. Þráðlaust net og sjónvarp er í öllum svefnherbergjum og í setustofunni. Útsýni yfir dalinn og til fjalla úr flestum herbergjum.
Veitingar/máltíðir
Á næsta bæ við Stóru-Ásgeirsá, Dæli (2,3 km), er Kaffi Sveitó, notaleg sveitakrá/kaffihús þar sem má fá máltíðir og léttar veitingar. Nokkrir matsölu- og veitingastaðir eru ekki langt undan í Húnaþingi vestra, t.d. veitingaskálinn Víðigerði, veitingastaður Sjávarborg á Hvammstanga og sjávarréttastaðurinn Geitafell á Vatnsnesi. Næsta matvöruverslun er á Hvammstanga (22 km).
Þjónusta/afþreying
Á Stóru-Ásgeirsá gefst börnum og fullorðnum einstakt tækifæri til að kynnast daglegu lífi íslenskra bænda og komast í snertingu við íslensku húsdýrin á bænum. Hestaleiga er á staðnum. Gönguleiðir. Vatnaveiði. Selaskoðun á landi eða á siglingu frá Hvammstanga. Fjölbreyttir möguleikar til skoðunarferða um þetta svæði. Næsti golfvöllur er við þorpið Blönduós (39 km). Næsta þéttbýli með sundlaug, verslunum og almennri þjónustu er á Hvammstanga (22 km).
Magnús Ásgeir bóndinn á Stóru-Ásgeirsá stendur reglulega fyrir tónleikum í Mjólkurhúsinu sem er samtengt hesthúsunum og er staðurinn með vínveitingaleyfi.
Íslenski hesturinn
Á Stóru-Ásgeirsá er stunduð hrossarækt og þaðan hafa komið fjölmargir landsþekktir gæðingar. Á vegum gestgjafa eru í boði lengri og styttri hestaferðir. Í styttri ferðunum er riðið niður engjarnar og meðfram Víðidalsá sem er ein af þekktari laxveiðiám á Ísland.
Íslensk tröll
Frá næsta bæ, Dæli (2,3 km), liggur merkt gönguleið (1-1,5 km) að fossi með steinbrú yfir sem nefnist Steinbogi. Skemmtileg 7 km göngu- eða ökuleið er að Kolugljúfrum þar sem Víðidalsá rennur í djúpum gljúfrum. Þjóðasagan hermir að tröllskessa hafi grafið gljúfrin og búið þar upp frá því. Í gljúfrunum eru Kolufossar.
Selaskoðun
Á Vatnsnesi, hálendum skaga á milli Húnafjarðar og Miðfjarðar eru ein aðgengilegustu og stærstu selalátur á Íslandi. Þar má skoða má landseli í návígi og ná af þeim góðum myndum í náttúrulegu umhverfi. Á þremur stöðum á nesinu hefur verið byggð upp aðstaða til selaskoðunar og í Selasetrinu á Hvammstanga (22 km) má fræðast nánar um seli og selveiðar. Frá Hvammstanga er hægt að komast í skoðunarsiglingar á selaslóðir.
Áhugaverðir staðir í grenndinni
Við hringveginn kringum Vatnsnes (90 km langur) eru tvær furðusmíðar náttúrunnar, Borgarvirki, gosstapi þar sem hafa fundist minjar frá fyrstu öldum Íslandsbyggðar og Hvítserkur, brimsorfinn 15 m hár klettur. Einnig er vel þess virði að aka yfir í næsta dal fyrir austan Víðidal, Vatnsdal og skoða þar t.d. Vatnsdalshóla og aka síðan hringferð um dalinn sem er fríður og hlýlegur á fallegum sumardögum
Gestgjafi: Magnús Ásgeir