Jöklar og saga, stjörnur og rómantík



Jöklar og saga, stjörnur og rómantík

12.10.2009 | Berglind Viktorsdóttir

Haustþing Þórbergsseturs verður að þessu sinni haldið laugardaginn 17. og sunnudaginn 18. október. Á þinginu verður blandað saman fræðslu, skemmtun og útiveru og komið víða við.

Þingið hefst kl 13:00 á fyrirlestri Helga Björnssonar jöklafræðings ,,Frá Breiðumörk til jökulsands, mótun lands í þúsund ár” og síðan verður farið í ferðalag um Breiðamerkursand og inn í Þröng, þar sem glögglega sést hversu hratt Breiðamerkurjökull hefur hopað á síðustu árum og áratugum.  Dætur Einars ríka í Vestmannaeyjum verða síðan með skemmtilega dagskrá í máli og myndum tengda samskiptum Þórbergs og Einars ríka föður þeirra. Og til að ætla vísindunum veglegan sess á þessu málþingi þá mun Snævarr Guðmundsson  fjalla um stjörnur og óravíddir himingeimsins, og hvort sem sjást einhverjar stjörnur á himninum eða ekki á að æfa sig í myrkragöngu og fara upp á Helghól undir miðnætti.

Á sunnudeginum ætlar Halldóra Gunnarsdóttir mannfræðingur að vera með erindi um Þórberg og ástina. Einnig verður ungur íslenskunemi með erindi tengt BA ritgerð sinni sem fjallar um Þórberg og rómantíkina. Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir er að skrá bréfasafn Þórbergs í Landsbókasafninu og segir skemmtilegar fréttir tengdar því, en síðan verða heimamenn með erindi eftir hádegi. Líkur eru á að meinlaust grín blandast dagskráinni eins og gjarnan þegar fjallað er um Þórberg og verk hans.

Allir eru velkomnir að sitja málþingið allt eða hluta þess.

Gistingu er hægt að fá á Hala sími 867 2900 hali@hali.is, Gerði sími 478 1905 eða bjornborg@centrum.is, á Smyrlabjörgum sími 478 1072 smyrlabjorg@smyrlabjorg.is og Skálafelli sími 478 1041 skalafell@simnet.is

í nágrenni