Framúrskarandi fyrirtæki 2010
09.03.2011
| Hildur Fjóla Svansdóttir
Ferðaþjónusta bænda er Framúrskarandi fyrirtæki ársins 2010 hjá Creditinfo!
Ferðaþjónustu bænda var veitt viðurkenning fyrir að vera í 18. sæti á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki ársins 2010. Creditinfo vinnur árlega að ítarlegri greiningu sem sýnir hvaða íslensk fyrirtæki fá bestu einkunn í styrk- og stöðugleikamati á Íslandi.
Af rúmlega 32 þúsund fyrirtækjum sem skráð eru í hlutafélagaskrá reyndust 177 fyrirtæki uppfylla þau skilyrði sem Creditinfo setur til að fá þessa viðurkenningu.
Ferðaþjónusta bænda hf. er afar stolt af þessari viðurkenningu.
Sjá viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki 2010.