Hótel Rauðaskriða fær Svansvottun



Hótel Rauðaskriða fær Svansvottun

25.03.2011 | Hildur Fjóla Svansdóttir
 

Hótel Rauðaskriða í Aðaldal hefur nú fengið vottun Norræna Umhverfismerkisins Svansins til staðfestingar á góðum árangri í umhverfismálum. Strangar kröfur Svansins tryggja að hótelið er í fremstu röð varðandi lágmörkun neikvæðra umhverfisáhrifa frá starfseminni. Rauðaskriða er eina hótelið á Íslandi með Svansvottun, en alls bera 15 fyrirtæki nú merki Svansins. Elva Rakel Jónsdóttir starfsmaður Svansins hjá Umhverfisstofnun afhenti leyfið á aðalfundi Félags ferðaþjónustubænda 23. mars síðastliðinn.
 
Við erum afar stolt af félögum okkar á Rauðuskriðu, þeim Kolbrúnu og Jóhannesi sem hafa sýnt mikinn metnað og áræðni í vinnu að umhverfismálum. Með Svansvottun er Hótel Rauðaskriða að skipa sér fremst í flokki hótela á Íslandi hvað varðar lágmörkun neikvæðra umhverfisáhrifa. Þessi árangur mun eflaust hvetja aðra félaga til dáða á sviði sjálfbærrar og ábyrgrar ferðaþjónustu.
 

Nánar um Svansvottun fyrir hótel

Allir gististaðir geta fengið Svansmerkið að því tilskildu að þeir uppfylli strangar kröfur Svansins. Nauðsynlegt er að vera með gott heildaryfirlit yfir umhverfisáhrif starfseminnar en Svansvottun tryggir meðal annars að.
 
    - Hótelið nær lágmarksviðmiðum er varðar orkunotkun, vatnsnotkun, efnanotkun og úrgangsmeðhöndlun.
    - Lögð er áhersla á að velja sem mest af umhverfismerktum vörum og þjónustu í innkaupum hótelsins. 
    - Flokkun úrgangs sé góð og tryggt að allur hættulegur úrgangur fái rétta meðhöndlun. 
    - Starfsmenn fái reglulega þjálfun og fræðslu. 
    - Umhverfisstarfi hótelsins er stýrt á skilvirkan hátt.
 

Norræna umhverfismerkið Svanurinn

Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem byggist á óháðri vottun og skilyrðum sem taka tillit til alls lífsferils vöru og þjónustu. Tilgangur Svansins er að ýta undir sjálfbæra þróun samfélagsins svo að komandi kynslóðir hafi jafna möguleika og við til að mæta þörfum sínum. Alls er hægt að votta um 70 mismunandi vöru- og þjónustuflokka.
 
Lesa meira um umhverfismerkið Svaninn hér.
 

í nágrenni